Skip to content
Instagram
Envelope
Forsíða
Uppskriftir
Aðalréttir
Drykkir
Eftirréttir
Forréttir
Morgunmatur
Orkuskot
Uppáhalds
Forsíða
Uppskriftir
Aðalréttir
Drykkir
Eftirréttir
Forréttir
Morgunmatur
Orkuskot
Uppáhalds
Próteinríkt Pastasalat með sólþurrkuðum tómötum og kasjúostasósu
12 júní , 2025
Lára Kristín
Undirbúningstími 20 mín
Eldunartími 12 mín
Lýsing
Dásamlega gott pastasalat með sólþurrkuðum tómötum, steiktum sveppum,. ólívum, basiliku og fersku brokkolíi toppað með heimagerðri kasjúostasósu
Innihaldsefni
500 g glútenlausar próteinríkar pastaskrúfur
1/2 tsk salt
1 msk ólívuolía
1/2 askja sveppir
1 msk af kókosolíu
salt eftir smekk
1/3 - 1/2 haus brokkolí, má vera ferskt eða bakað með sveppunum.
8 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
15 grænar ólívur
10 Döðlur
10 lauf basilika, söxuð
Klettasalat og/eða ferskt spínat
1 bolli pekanhnetur léttristaðar í ofni í 7-8 mín á 180.
Kasjúostasósa
1 1/2 bolli kasjúhnetur
1 1/2 bolli vatn
1/4 bolli ólívuolía
2 msk maple síróp
1 tsk salt
1 lítið hvítlauksrif eða 1 tsk hvítlauksduft
1/3 b næringarger
2 tsk sítrónusafi
1-2 tsk eplaedik
Aðferð
Pastað soðið samkvæmt leiðbeiningum.
Kælt aðeins í köldu vatni
ólívuolíu og salti hrært við.
Sveppirnir sneiddir og settir í eldfast form og kókosolíu og salti stráð yfir og bakað í 10-14 mín við 200 gráður
Pekanhneturnar settar á ofnplötu og bakaðar í 6-7 mín við 180 gráður
Brokkolíið, tómatarnir, ólívurnar og basilikan skorið niður.
Öllu blandað saman við pastað og borið fram með kasjúostasósu.
Kasjúostasósa
Kasjúhneturnar settar í bleyti í kalt vatn yfir nótt eða 2 tíma minnst eða í sjóðandi vatni í 15 mín minnst
Hneturnar skolaðar og settar í blandaraglas ásamt hinum innihaldsefnunum
Allt maukað saman í blandara
Bæta við uppáhalds
Upplýsingar
% af ráðlöglum dagskammti
No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir
Nafn
Netfang
Skrá mig