Próteinrík fræpítsa með hunangi og brokkolíi

Undirbúningstími 20 mín
Eldunartími 18 mín
Lýsing
Ómótstæðilega góð og ofur holl pítsa úr fræjum og hnetum toppuð með hunangi og brokkolíi
Innihaldsefni

Botninn

  • 2/3 b hörfræ
  • 2/3 b sesamfræ
  • 1/2 b sólblómafræ möluð
  • 1/2 b kasjúhnetrur malaðar
  • 3/4 - 1 b vatn
  • 1/2 tsk salt
  • Pítsakrydd smá

Ofaná

  • hunang
  • brokkolí, skorið í bita
  • sveppir, sneiddir
  • svartar ólívur, skornar
  • karamelluseraður rauðlaukur
  • basilika, söxuð ef vill
  • heimagerður kasjúostur eða Violife Epic Mature
Aðferð
  1.  Hörfræin sett í skál með vatninu og þeim leyft að klístrast í 10-20 mín sirka
  2.  Sólblómafræ og kasjúhnetur malað í kaffikvörn eða blandara
  3.  Öllu innihaldsefnin sett í hörfræblönduna og hrært saman
  4.  Sett á bökunarpappír sem búið er að pensla með olíu(svo hann festist ekki) annar pappír settur yfir og kökukefli notað til að fletja út
  5.  Forbakað í 5-7 mín við 180 g hita
  6. Grænmeti skorið og gert tilbúið
  7.  Þegar botninn hefur kólnað aðeins er hunangi hellt yfir (þarf ekki að þekja pítsuna), söxuðu brokkolíi, sneiddum sveppum, sneiddum svörtum ólívum, karamelluseruðum rauðlauk, saxaðri basiliku ef vill og loks kasjúosti hellt yfir (á ekki að þekja pítsuna, frekar eins og að hella sírópi eða sósu)
  8.  Bakað í sirka 10-12 mín við 180-200 g hita
  9. Gott að setja klettasalat yfir pítsuna þegar hún er tilbúin og jafnvel kasjúsósu og njóta svo
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð