Próteinrík og holl Eplakaka

Undirbúningstími 15 mín
Eldunartími 30 mín
Lýsing
Einstaklega góð og ofur holl eplakaka, próteinrík, glútenlaus og vegan.
Innihaldsefni

Botninn

  • 1 bolli kasjúhnetur, malaðar
  • 1 bolli glútenlaust haframjöl, malað
  • 1 bolli möndlumjöl
  • 1/4 bolli kókosolía
  • 2/3 bolli kókospálmasykur
  • 2/3 bolli kíkosmjólk eða mjólk að eigin vali
  • 1 tsk eplaedik, gott að setja útí mjólkina
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 3 epli, rifin með rifjárni
  • 2 tsk kanill
  • 1/2 tsk kardimommur, má sleppa

Hnetu-möndlu blanda til að setja yfir

  • 1/2 bolli kasjúhnetur, malaðar
  • 1/2 bolli möndlumjöl
  • 1/4 bolli kókospálmasykur
  • 1/4 bolli kókosolía brædd
  • smá salt
Aðferð

Botninn

  1. Kókosolía og kókospálmasykur hrært saman í hrærivél
  2. Kasjúhnetur og haframjöl duftað í kaffikvörn eða blandara
  3. Eplin rifin á rifjárni
  4. Öllum innihaldsefnunum bætt útí hrærivélaskálina og hrært vel saman
  5. Rifnu eplin sett útí í lokin og hrært létt
  6. Sett í kringlóttt bökunarform klætt bökunarpappír
  7. Hnetu möndlublöndunni stráð yfir
  8. Bakað í 30-40 mín við 160-170 gráður eða þar til prjónn kemur nokkuð hreinn út

Hnetu-möndlu blanda til að setja yfir

  1. Kókosolía brædd við vægan hita í potti eða skál með heitu vatni undir
  2. Kasjúhnetur malaðar í kaffikvörn eða blandara
  3. Öll innihaldsefnin sett í pottinn eða skálina og hrært saman
  4. Stráð yfir deigið með fingrunum þegar það er komið í formið
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð