Möndlu hafrasæla

Undirbúningstími 10 mín
Eldunartími 20 mín
Lýsing
Holl og góð útgáfa af Hjónabandssælu með möndlumjöli, glútenlausu haframjöli og kókospálmasykri, sælan er vegan og glútenlaus.
Innihaldsefni
  • 100 g kókosolía
  • 80 g kókospálmasykur
  • 150 g möndlumjöl
  • 1/4 dl maple síróp
  • 1/4 tsk salt
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 2 dl haframjöl glútenlaust
  • 1/2 dl rúsínur, má sleppa
Aðferð
  1. Kókosolía og sykur hrært saman í hrærivél
  2. Öll innihalsefnin sett útí nema rúsínurnar og hrært vel saman
  3. Rúsínurnar settar úti og hrært saman
  4. Sett í bökunarform eða elfast form með bökunarpappír
  5. Bakað við 160 gráður í 20 mín sirka
  6. Skorið í bita þegar sælan hefur kólnað
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð