Hummus

Undirbúningstími 5 mín
Eldunartími 0 mín
Lýsing
Hummus er frábær sem meðlæti, eða álegg á hrökkkex eða gott brauð. Baunir eru rosalega hollar og góðar fyrir okkur - helst nota lífrænar.
Innihaldsefni
  • 1 dós kjúklingabaunir (ég nota Grön Balance)
  • 2-3 msk sítrónusafi
  • 1 tsk Herbamere
  • 1/2 til 1 bolli bragðlaus  ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif eða 1 tsk hvítlaukskrydd (má sleppa)
  • Gott að setja smá ferskan eða þurkaðan chilli. Einnig má setja skvettu af Sriratsa sósu eða sweet-chilli sósu (ath þessar sósur innihalda sykur.

Smá vatn eins og þarf. Ef þetta er sett í smoothie vél þá þarf smá vatn svo blandarinn ráði við þetta. Vökvi þarf helst að ná rétt fyrir ofan baunirnar.

Mauka í smoothie vél eða með töfrasprota

Aðferð

Vökva hellt af baunum og þær skolaðar í sigti.

Allt sett í smoothie vél eða í skál fyrir töfrasprota.

Mauka í smoothie vél eða með töfrasprota.

Mauka þar til orðið að mjúkum og fallegum hummus.

Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð