Einstaklega gott og ofurhollt döðlubrauð sem kætir kroppinn, brauðið er mjög saðsamt og gefur góða orku. Inniheldur möndlumjöl, hörfræ, kasjúhnetur og glútenlaust haframjöl
Innihaldsefni
300 g döðlur soðnar
1/4 bolli kókosolía
2 bollar glútenlaust haframjöl, duftað
1/4 bollar hörfræ, mulin
1 bolli kasjúhnetur muldar
1 1/2 bolli möndlumjöl
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1-2 tsk vanilludropar
1 1/2 bolli kókosmjólk aðeins meira ef deigið er of þykkt, ekki gott þá verður það of þurrt
1 tsk eplaedik
Aðferð
Döðlur soðnar í potti með vatni sem rétt flýtur yfir þær í allavegana 5 mín
Þegar hægt er að mauka þær eru þær settar í hrærivélaskál og hrært aðeins, allt í góðu ef það er smá vatn eftir í pottinum, það má fara með
Kókosolíu og sykri bætt útí og hrært vel
Kasjúhnetur, haframjöl og hörfræ möluð í kaffikvörn eða matvinnsluvél/blandara
Öllum innihaldsefnunum hært útí hrærivélaskálina og hrært í smá stund
Sett í form og bakað við 170 g í 60 mín
Þegar 20 mín eru eftir er gott að taka brauðið úr forminu og baka það bert á pappírnum til að fá betri skorpu en ekki nauðsynlegt