Bláberjamorgunbomba.

noodle_vongole_04,-1

Kraftur inní nýjan dag með þessari

Undirbúningstími 5 mín
Eldunartími 0 mín
Lýsing
Þennan ofurholla og næringaríka smoothie er gott að borða fyrst á daginn þegar hungrið kallar
Innihaldsefni

2 dl bláber

1 dl frosið mango

1 msk möndlusmjör eða tahini

2 msk flaxeed (mulin hörfræ)

1 msk kardimommur (hægt að kaupa muldar í kryddstauk frá Prima)

2 tsk kanill

3 ferskar döðlur (má líka vera döðlusýróp)

smá vanilludropar

vatn eins og þarf til að hylja allt sem er komið í glasið.

 

Aðferð

Allt sett í blandara

Extranæs:

Í staðinn fyrir drykk ar hægt að búa til smoothie skál með þessari uppskrift.

Þá er sett minna vatn svo úr verði eins konar jógúrt.

Hellt í skál og toppað með:

saxaðar möndlur, kókosflögur (ég nota alltaf ristaðar frá MUNA), valhnetur eða jafnvel gott heimagert granóla.

Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð