Eplabaka með stökkri mylsn

Undirbúningstími 15 mín
Eldunartími 40 mín
Lýsing
Holl og góð eplabaka, gútenlaus og vegan. Fullkomin í sunnudagskaffið eða sem eftirréttur.
Innihaldsefni

Mylsnan

  • 1 1/2 bolli möndlumjöl
  • 1 bolli haframjöl glútenlaust
  • 2/3 bolli gróft saxaðar valhnetur eð aðrar hnetur, má sleppa
  • 3/4 bolli kókóspálmasykur
  • Smá salt
  • 12 msk kókosolía eða vegan smjör
  • 2 tsk vanilludropar

Eplin

  • 4-5 epli í bitum
  • 4 msk kókóspálmasykur
  • 2 tsk kanill
  • 2 msk sítrónusafi
  • 1 msk vegan smjör eða olía
  • 2 msk tapioka sterkja eða kartöflumjöl
Aðferð

Mylsnan

  1. Allt hrært saman og sett yfir eplin

Eplin

  1. Eplin skorin í bita og sett í eldfast form
  2. Öllu stráð yfir eplin (nema smjörið) og hrært saman
  3. Smjörið sett yfir í litlum klípum
  4. Mylsnan sett yfir
  5. Bakað í 40-50 mín við 170 gráður
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð