Hollt og gott Döðlubrauð

Undirbúningstími 15 mín
Eldunartími 60 mín
Lýsing
Einstaklega gott og ofurhollt döðlubrauð sem kætir kroppinn, brauðið er mjög saðsamt og gefur góða orku. Inniheldur möndlumjöl, hörfræ, kasjúhnetur og glútenlaust haframjöl
Innihaldsefni
  • 300 g döðlur soðnar
  • 1/4 bolli kókosolía
  • 2  bollar glútenlaust haframjöl, duftað
  • 1/4 bollar hörfræ, mulin
  • 1 bolli kasjúhnetur muldar
  • 1 1/2 bolli möndlumjöl
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 1-2 tsk vanilludropar
  • 1 1/2 bolli kókosmjólk aðeins meira ef deigið er of þykkt, ekki gott þá verður það of þurrt
  • 1 tsk eplaedik
Aðferð
  1. Döðlur soðnar í potti með vatni sem rétt flýtur yfir þær í allavegana 5 mín
  2. Þegar hægt er að mauka þær eru þær settar í hrærivélaskál og hrært aðeins, allt í góðu ef það er smá vatn eftir í pottinum, það má fara með
  3. Kókosolíu og sykri bætt útí og hrært vel
  4. Kasjúhnetur, haframjöl og hörfræ möluð í kaffikvörn eða matvinnsluvél/blandara
  5. Öllum innihaldsefnunum hært útí hrærivélaskálina og hrært í smá stund
  6. Sett í form og bakað við 170 g í 60 mín
  7. Þegar 20 mín eru eftir er gott að taka brauðið úr forminu og baka það bert á pappírnum til að fá betri skorpu en ekki nauðsynlegt
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð