Ómótstæðilega góð og ofur holl pítsa úr fræjum og hnetum toppuð með hunangi og brokkolíi
Innihaldsefni
Botninn
2/3 b hörfræ
2/3 b sesamfræ
1/2 b sólblómafræ möluð
1/2 b kasjúhnetrur malaðar
3/4 - 1 b vatn
1/2 tsk salt
Pítsakrydd smá
Ofaná
hunang
brokkolí, skorið í bita
sveppir, sneiddir
svartar ólívur, skornar
karamelluseraður rauðlaukur
basilika, söxuð ef vill
heimagerður kasjúostur eða Violife Epic Mature
Aðferð
Hörfræin sett í skál með vatninu og þeim leyft að klístrast í 10-20 mín sirka
Sólblómafræ og kasjúhnetur malað í kaffikvörn eða blandara
Öllu innihaldsefnin sett í hörfræblönduna og hrært saman
Sett á bökunarpappír sem búið er að pensla með olíu(svo hann festist ekki) annar pappír settur yfir og kökukefli notað til að fletja út
Forbakað í 5-7 mín við 180 g hita
Grænmeti skorið og gert tilbúið
Þegar botninn hefur kólnað aðeins er hunangi hellt yfir (þarf ekki að þekja pítsuna), söxuðu brokkolíi, sneiddum sveppum, sneiddum svörtum ólívum, karamelluseruðum rauðlauk, saxaðri basiliku ef vill og loks kasjúosti hellt yfir (á ekki að þekja pítsuna, frekar eins og að hella sírópi eða sósu)
Bakað í sirka 10-12 mín við 180-200 g hita
Gott að setja klettasalat yfir pítsuna þegar hún er tilbúin og jafnvel kasjúsósu og njóta svo