Próteinríkt Pastasalat með sólþurrkuðum tómötum og kasjúostasósu

Undirbúningstími 20 mín
Eldunartími 12 mín
Lýsing
Dásamlega gott pastasalat með sólþurrkuðum tómötum, steiktum sveppum,. ólívum, basiliku og fersku brokkolíi toppað með heimagerðri kasjúostasósu
Innihaldsefni
  • 500 g glútenlausar próteinríkar pastaskrúfur
  • 1/2 tsk salt
  • 1 msk ólívuolía

 

  • 1/2 askja sveppir
  • 1 msk af kókosolíu
  • salt eftir smekk

 

  • 1/3 - 1/2 haus brokkolí, má vera ferskt eða bakað með sveppunum.
  • 8 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
  •  15 grænar ólívur
  • 10 Döðlur
  • 10 lauf basilika, söxuð
  • Klettasalat og/eða ferskt spínat
  • 1 bolli pekanhnetur léttristaðar í ofni í 7-8 mín á 180.

Kasjúostasósa

  • 1 1/2 bolli kasjúhnetur
  • 1 1/2 bolli vatn
  • 1/4 bolli ólívuolía
  • 2 msk maple síróp
  • 1 tsk salt
  • 1 lítið hvítlauksrif eða 1 tsk hvítlauksduft
  • 1/3 b næringarger
  • 2 tsk sítrónusafi
  • 1-2 tsk eplaedik
Aðferð
  1.  Pastað soðið samkvæmt leiðbeiningum.
  2.  Kælt aðeins í köldu vatni
  3.  ólívuolíu og salti hrært við.
  4. Sveppirnir sneiddir og settir í eldfast form og kókosolíu og salti stráð yfir og bakað í 10-14 mín við 200 gráður
  5. Pekanhneturnar settar á ofnplötu og bakaðar í 6-7 mín við 180 gráður
  6. Brokkolíið, tómatarnir, ólívurnar og basilikan skorið niður.
  7. Öllu blandað saman við pastað og borið fram með kasjúostasósu.

Kasjúostasósa

  1.  Kasjúhneturnar settar í bleyti í kalt vatn yfir nótt eða 2 tíma minnst eða í sjóðandi vatni í 15 mín minnst
  2.  Hneturnar skolaðar og settar í blandaraglas ásamt hinum innihaldsefnunum
  3.  Allt maukað saman í blandara
Upplýsingar

% af ráðlöglum dagskammti

No data was found
Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu þegar koma nýjar spennandi uppskriftir

Sendu skilaboð