8 sveppir
Kókosolía til að steikja sveppina uppúr.
Flögusalt til að salta sveppina.
Eplaedik til að skvetta smá á sveppina.
Nokkrar súrar gúrkur (eftir smekk) Gott að kaupa þessar litlu í krukkunum frá Himneskt.
Tamari möndlur
Lambhagasalat
ólífuolía til að setja smá yfir salatið.
Kasjúmajónes (sjá uppskrift í "sósur"
Gult sinnep
Skera sveppi í þykkar sneiðar, gott að byrja á að skera þá þversum og svo í þykkar sneiðar.
Steikja við miðlungshita í kókosolíu. Salta með grófum saltflögum. Þegar þeir eru steiktir, finnst mér gott að skvetta smá eplaediki útá og smá döðlusýrópi. Þetta er ekki möst en gerir sveppina bragðbetri og meira djúsí. Leyfa að kólna aðeins á pönnunni. Á meðan:
Rífa niður salat í skál, kvetta smá ólífuolíu yfir og hræra saman.
Skera í sneiðar súrar gúrkur.
Skera Tamari möndlur í tvennt.
Hræra saman kasjúmajónesi og sinnepi, gott að hræra smá sætu saman við, hunangi eða döðlusýrópi.
Hella sósunni svo yfir salatið, sveppunum, möndlunum og súru gúrkunum.
% af ráðlöglum dagskammti